Vefkökustefna
Síðast uppfært: júní 2026
1. Inngangur
Þessi vefkökustefna útskýrir hvernig Norrstone Limited („Norrstone“, „við“, „okkur“ eða „okkar“) notar vefkökur og sambærilega tækni í tengslum við Flass.
Stefnan skal lesin samhliða Persónuverndarstefnu Flass.
2. Hvað eru vefkökur?
Vefkökur (e. cookies) eru litlar textaskrár sem vistaðar eru í tæki notanda þegar hann heimsækir vefsíðu eða notar stafræna þjónustu.
Vefkökur geta verið nauðsynlegar fyrir virkni þjónustu eða notaðar til að muna val notenda, bæta öryggi og greina notkun þjónustu.
3. Hvaða vefkökur notum við?
Flass notar eingöngu vefkökur og sambærilega tækni sem eru nauðsynlegar fyrir rekstur og öryggi þjónustunnar.
Þar undir falla meðal annars:
Innskráningar- og auðkenningarkökur
Notaðar til að:
- Halda notendum innskráðum
- Staðfesta auðkenni notenda
- Tryggja örugga notkun þjónustunnar
Virknikökur
Notaðar til að:
- Muna tungumálaval
- Vista stillingar notenda
- Viðhalda virkni þjónustunnar
Öryggiskökur
Notaðar til að:
- Koma í veg fyrir misnotkun
- Greina óheimilar aðgangstilraunir
- Vernda notendareikninga og gögn
4. Notum við greiningar- eða auglýsingakökur?
Nei.
Flass notar ekki:
- Auglýsingakökur
- Markaðskökur
- Endurmarkaðssetningarkökur (retargeting)
- Kökur sem rekja notendur milli vefsíðna
- Kökur sem eru notaðar til að byggja upp persónusnið í markaðsskyni
Ef slíkar kökur verða teknar upp í framtíðinni verður notenda aflað samþykkis áður en þær eru virkjaðar, eftir því sem lög krefjast.
5. Staðbundin geymsla og sambærileg tækni
Flass kann einnig að nota staðbundna geymslu (e. local storage), session storage eða sambærilega tækni til að:
- Viðhalda innskráningu
- Geyma notendastillingar
- Tryggja virkni þjónustunnar
Slík tækni er aðeins notuð að því marki sem nauðsynlegt er fyrir rekstur þjónustunnar.
6. Þriðju aðilar
Við kunnum að nýta þjónustuaðila sem setja tæknilega nauðsynleg auðkenni eða kökur í tengslum við þjónustuna, þar á meðal:
- Supabase
- Vercel
- Stripe
- RevenueCat
- Apple
Slík auðkenni eru notuð í þeim tilgangi að veita þjónustuna, tryggja öryggi hennar eða vinna greiðslur.
7. Stjórnun vefkaka
Þú getur stjórnað eða eytt vefkökum í stillingum vafra þíns.
Athuga skal að ef nauðsynlegar vefkökur eru gerðar óvirkar gæti þjónustan ekki virkað rétt eða ákveðnir hlutar hennar orðið óaðgengilegir.
8. Breytingar á stefnunni
Norrstone áskilur sér rétt til að uppfæra þessa vefkökustefnu eftir því sem nauðsyn krefur.
Nýjasta útgáfa stefnunnar verður ávallt aðgengileg á vefsvæði eða í forriti Flass.
9. Hafðu samband
Spurningar um notkun vefkaka eða persónuvernd má senda á flass@flass.app.