Fyrir jólagleði fyrirtækisins
Jólagleðin, eins og starfsfólkið sá hana
Bestu augnablik kvöldsins gerast við borðin og á dansgólfinu — og enda í tugum ólíkra síma. Flass er stafræn einnota myndavél fyrir jólagleðina og jólahlaðborðið: allir fanga kvöldið og myndabókin framkallast fyrir allt fyrirtækið daginn eftir.
Svona virkar það á jólagleðinni
1.Við setjum viðburðinn upp
Þið sendið okkur dagsetningu og merki fyrirtækisins; við setjum upp viðburðinn og sendum prenttilbúið QR-plakat í ykkar nafni. Eða þið gerið þetta sjálf á tveimur mínútum.
2.Starfsfólkið fangar kvöldið
Skanna kóðann á borðinu og myndavélin opnast samstundis í símanum — ekkert þarf að setja upp, engin innskráning. Flass er líka til í App Store fyrir þau sem vilja.
3.Framköllun daginn eftir
Myndabókin framkallast fyrir allt starfsfólkið á tíma sem þið veljið — og stutt hápunktamyndband af kvöldinu fylgir.
Allt innifalið — 29.900 kr. án vsk. á viðburð
Óháð fjölda gesta
Eitt verð á viðburð, hvort sem 30 eða 300 mæta. Enginn kostnaður á hvern starfsmann.
Uppsetning og plakat með ykkar merki
Við setjum viðburðinn upp og útbúum prenttilbúið QR-plakat með merki fyrirtækisins fyrir borðin.
Myndir í fullri upplausn fyrir alla
Allt starfsfólkið getur sótt myndirnar í fullum gæðum — til prentunar, á innri vefinn eða í fréttabréfið.
Hápunktamyndband af kvöldinu
Bestu augnablikin klippt saman í stutt, kvikmyndalegt myndband — tilbúið fyrir starfsmannahópinn.
Lokuð myndabók
Aðeins þau sem hafa hlekkinn eða QR-kóðann komast inn, og þið getið falið myndir sem eiga ekki heima í albúminu. Gögnin eru geymd innan EES.
Reynt í alvöru veislum
Yfir 10.000 myndir hafa þegar verið teknar á Flass á tugum viðburða. Íslensk vara, á íslensku.
Spurt og svarað fyrir jólagleðina
Hvað kostar Flass fyrir jólagleðina?
29.900 kr. án vsk. á viðburð, óháð fjölda gesta. Innifalið er uppsetning, QR-plakat með merki fyrirtækisins, myndir í fullri upplausn fyrir alla og hápunktamyndband af kvöldinu. Viljið þið frekar gera þetta sjálf er fyrsti viðburðurinn ókeypis á flass.app/start.
Þarf starfsfólkið að sækja app?
Nei. QR-kóðinn opnar myndavélina samstundis í símanum — ekkert þarf að setja upp og engin innskráning. Flass er líka til í App Store og Google Play fyrir þau sem vilja.
Hver sér myndirnar?
Myndabókin er einkasvæði viðburðarins — aðeins aðgengileg með hlekk eða QR-kóða kvöldsins, ekki opin á netinu. Þið getið falið myndir sem eiga ekki heima í albúminu. Flass fylgir GDPR og gögnin eru geymd innan EES.
Hvenær fær starfsfólkið myndirnar?
Þið veljið framköllunartímann. Vinsælast er morguninn eftir — myndabókin opnast þá fyrir alla í einu og kvöldið lifir aðeins lengur.
Virkar þetta líka fyrir árshátíðina?
Já — sama verð gildir fyrir árshátíðir, starfsdaga og aðra fyrirtækjaviðburði. Fyrirtæki með marga viðburði á ári geta líka verið í Flass Business áskrift.
Hvernig pöntum við?
Sendið okkur línu á flass@flass.app eða í gegnum Hafðu samband-síðuna með dagsetningu jólagleðinnar og merki fyrirtækisins — við setjum þetta upp. Eða búið viðburðinn til sjálf á flass.app/start.
Ein myndabók fyrir allt fyrirtækið
29.900 kr. án vsk., óháð fjölda gesta — eða prófið sjálf, fyrsti viðburðurinn er ókeypis.
Búa til jólagleði-Flass